Fundur 1633

  • Bćjarráđ
  • 18. janúar 2023

1633. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 17. janúar 2023 og hófst hann kl. 15:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. 

Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 8. mál: 2301068 - Rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar. 

Samþykkt samhljóða.

Dagskrá:
1. Vinnumálastofnun - Starfsemi V58 - 2301019

Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, byggingafulltrúi og lögfræðingur tæknideildar 
sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Málið lagt fram.

2. Móttaka flóttafólks - 2301053
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Farið yfir stöðu málsins.

Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund  bæjarráðs.

3. Deiliskipulag miðbæjar í Grindavík - 2211017
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Lögð fram beiðni um viðauka vegna vinnu við miðbæjarskipulag að upphæð 15 milljónir króna sem fjármagnað verður með lækkun á handbæru fé. 

Þegar er gert ráð fyrir 5 milljónum króna til verkefnisins á þessu ári. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður 20 milljónir króna. Tölvupóstur sem sendur var á bæjarstjórn 
og skipulagsnefnd þann 17. nóvember 2022 lagður fram. Þá er vísað til bókunar undir máli nr. 2212007 þar sem meirihluti bæjarráðs fjallar m.a. um verkefnið. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.

4. Endurnýjun samnings vegna fjölþættrar heilsueflingar 65 - 2209005
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Uppfærður samningur við Janus heilsueflingu lagður fram. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

5. Ljósmyndasýning utanhúss - 2212034
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Helga Dís vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins. 

Lögð fram beiðni um viðauka að fjárhæð 2.000.000 kr. á rekstrareininguna Viðburðardagskrá/menningarvika 05731-4342 og að viðaukinn verði fjármagnaður með hækkun tekna á lykil 0911 á sömu rekstrareiningu. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.

6. Reglur um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík - 2301012
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Reglur um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík eru lagðar fram. 

Frístunda- og menningarnefnd leggur til við bæjarráð að fella reglurnar úr gildi. 

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fella reglurnar úr gildi.

7. Afnot af íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar 2022 - 2301052
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Félag eldri borgara í Grindavík óskar eftir að fá styrk á móti leigu í Íþróttamannvirkjum vegna Zumba námskeiða. Harpa Pálsdóttir óskar eftir að fá styrk á móti leigu vegna dansnámskeiða í íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar. 

Bæjarráð samþykkir erindin og felur sviðsstjóra að sækja um viðauka vegna ársins 2023.

8. Rafmagnsleysi á Suðurnesjum vegna bilunar - 2301068
Málið er sett á dagskrá að beiðni meirihluta bæjarstjórnar. 

Bæjarráð hvetur málsaðila að leysa málið hið fyrsta varðandi Suðurnesjalínu 2 en í ljósi rafmagns- og vatnsleysis í gær er málið orðið mjög alvarlegt.

9. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Þorrablót 2023 - 2301006
Jón Júlíus Karlsson óskar eftir tímabundnu áfengisleyfi vegna fyrirhugaðs þorrablóts í íþróttamiðstöðinni í Grindavík þann 28. janúar 2023. 

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. 

Slökkvilið Grindavíkur gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 

Bæjarráð Grindavíkurbæjar mælir með veitingu leyfisins.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135