Fundur 536

  • Bæjarstjórn
  • 11. janúar 2023

536. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 3. janúar 2023 og hófst hann kl. 16:00.


Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður,

Einnig sat fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. 

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagskrá:

1.      Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Grindavíkur - 2212059
    Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs. 

Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

SAMÞYKKT um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar er lögð fram til síðari umræðu. 

Á 535. fundi bæjarstjórnar þann 27. desember sl. var samþykkt að vísa neðangreindum tillögum að breytingum á bæjarmálasamþykkt Grindvíkurbæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn: 

1. Tillaga að breytingu á 4. tl. undir B-lið 1. mgr. 48. gr. er svohljóðandi: 

4. Félagsmálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálanefnd fer með öldrunarmál skv. 7. gr. laga nr. 125/1999, jafnréttismál skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020, málefni fatlaðs fólks skv. lögum nr. 38/2018, húsnæðismál skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 og yfirstjórn barnaverndarþjónustu skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002, ásamt öðrum þeim verkefnum sem nefndinni eru falin með erindisbréfi. 

2. Tillaga að nýjum tölulið (nr. 8) undir C-lið 1. mgr. 48. gr. er svohljóðandi: 

8. Umdæmisráð barnaverndar. Grindavíkurbær stendur sameiginlega að umdæmisráði barnaverndar í samstarfi við önnur sveitarfélög samkvæmt samningi þar um, í samræmi við 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, sbr. síðari breytingar. Bæjarstjórn kýs einn fulltrúa sveitarfélagsins í valnefnd til fimm ára sem annast skipan umdæmisráðs skv. 2. gr. samningsins. 

3. Tillaga að nýjum viðauka, nr. 2.1., í Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar, um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Grindavíkur. 

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða samþykkt og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að óska eftir staðfestingu ráðherra á samþykktinni.
         
2.      Innheimta fyrir meðhöndlun úrgangs - 2212075
    Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, Hallfríður og Hjálmar. 

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 29.12.2022 þar sem vakin er athygli á breytingum laga er snúa að sorpmálum. 
         
3.      Lokanir á Grindavíkurvegi vegna ófærðar - 2212074
    Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Helga Dís og Birgitta Rán. 

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið og svöruðu þeir fyrirspurnum. 

Almennar umræður um lokanir og snjómokstur en engin gögn lögð fram.          


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.
 


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 22. mars 2023

Fundur 1639

Skipulagsnefnd / 22. mars 2023

Fundur 117

Bæjarráð / 22. mars 2023

Fundur 1638

Frístunda- og menningarnefnd / 9. mars 2023

Fundur 124

Bæjarráð / 8. mars 2023

Fundur 1637

Bæjarstjórn / 1. mars 2023

Fundur 538

Fræðslunefnd / 27. febrúar 2023

Fundur 128

Bæjarráð / 23. febrúar 2023

Fundur 1636

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2023

Fundur 115

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. febrúar 2023

Fundur 70

Bæjarráð / 15. febrúar 2023

Fundur 1635

Skipulagsnefnd / 10. febrúar 2023

Fundur 114

Bæjarráð / 8. febrúar 2023

Fundur 1634

Frístunda- og menningarnefnd / 2. febrúar 2023

Fundur 123

Bæjarstjórn / 1. febrúar 2023

Fundur 537

Skipulagsnefnd / 31. janúar 2023

Fundur 113

Afgreiðslunefnd byggingamála / 19. janúar 2023

Fundur 69

Bæjarráð / 18. janúar 2023

Fundur 1633

Frístunda- og menningarnefnd / 12. janúar 2023

Fundur 122

Fræðslunefnd / 11. janúar 2023

Fundur 126

Bæjarráð / 11. janúar 2023

Fundur 1632

Bæjarstjórn / 11. janúar 2023

Fundur 536

Skipulagsnefnd / 10. janúar 2023

Fundur 112

Bæjarstjórn / 28. desember 2022

Fundur 535

Öldungaráð / 21. desember 2022

Fundur 13

Bæjarráð / 21. desember 2022

Fundur 1631

Skipulagsnefnd / 20. desember 2022

Fundur 111

Fræðslunefnd / 19. desember 2022

Fundur 125

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. desember 2022

Fundur 68

Bæjarstjórn / 14. desember 2022

Fundur 534