Útlit fyrir slćmt ferđaveđur á gamlársdag

  • Fréttir
  • 30. desember 2022

Á gamlársdagsmorgun er útlit fyrir allhvassa suðaustanátt sunnan- og vestantil á landinu með snjókomu og skafrenningi samkvæmt Veðurstofu Íslands. Það eru því líkur á að færð spillist. Í dag (30. desember) verður hins vegar rólegt veður víðast hvar og er fólk hvatt til að nýta daginn til að klára að útrétta fyrir áramótin.
Á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur einnig fram að búast megi við að færð á vegum verði þung og að jafnvel komi til lokana. Því eru vegfarendur hvattir til að fylgjast vel með færð og veðri á umferdin.is ef ætlunin er að aka milli landshluta.
Sjá nánar frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir