Útbođ - Grunnskóli Grindavíkur - Utanhúsklćđningar

  • Fréttir
  • 8. nóvember 2022

Consensa fyrir hönd Grindavíkurbæ óskar eftir tilboðum í endurbætur á grunnskóla Grindavíkur sem staðsettur er við Ásabraut 2, 240 Grindavík. Um er að ræða niðurrif á núverandi klæðningu og uppsetningu á
nýrri utanhúsklæðningu, gluggaskiptum að hluta ásamt þéttingu og viðhaldi á eldri gluggum.

Verkið samanstendur af eftirfarandi verkáföngum:

1. Áfangi (Gult svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2023
2. Áfangi (Grænt svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2024
3. Áfangi (Rautt svæði) –  Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2025

Um er að ræða fullnaðarfrágang verksins samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Verkkaupi sér um að útvega allar hurðir og glugga sem fyrirhugað er að endurnýja í ofangreindum verkáföngum.

Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum á vefslóðinni:
https://tendsign.is/doc.aspx?UniqueId=afjnndxkpo&GoTo=Tender

Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn á útboðsvefnum og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir