66. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, mánudaginn 17. október 2022 og hófst hann kl. 11:00.
Fundinn sátu: Íris Gunnarsdóttir, lögfræðingur skipulags- og umhverfissviðs, Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjörtur Már Gestsson, starfsmaður skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Mávahlíð 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi - 2208029
Eyjólfur Eiríksson sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsum samkvæmt teikningum frá Kristni Ragnarssyni arkitekt ehf dags. 22.07.2022
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15.