Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum stendur fyrir námskeiðum í Kvikunni fyrir 60 ára og eldri þar sem kennt verður á snjalltæki s.s. spjaldtölvur og snjallsíma. Markmiðið er að efla tölvulæsi á snjalltæki, þ.e. þekkingu og færni í notkun rafrænna skilríkja og vefsíðna sem nauðsynlegt er að geta nýtt, s.s. heimabanka, netverslun, samfélagsmiðla, efnisveitur og notkun á tölvupóstum og öðrum rafrænum samskiptum. Námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Námsþættir:
Kennsluaðferðir og námsefni:
Kennslan verður einstaklingsmiðuð og því sniðin að þörfum hvers og eins en almenn atriði kynnt að hluta til fyrir alla á sama tíma. Kennsluefnið verður að hluta til rafrænt en einnig útprentuð gögn.
Tímasetning:
Námskeiðið er fjögur skipti, dagana 10., 11., 12. og 13. október frá kl. 10:00 - 12:00 eða kl. 13:00 - 15:00.
Leiðbeinendur:
Anna Albertsdóttir/Sólveig Friðriksdóttir
ATH: Aðeins eru 8 pláss á námskeiðinu - eftir það er tekið við skráningum á biðlista.
Skráning á námskeiðið fyrir hádegi fer fram hér.
Skráning á námskeiðið eftir hádegi fer fram hér.