118. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 7. september 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Sigríður Etna Marinósdóttir, formaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, varaformaður, Viktor Guðberg Hauksson, aðalmaður, Hulda Kristín Smáradóttir, aðalmaður, Petra Rós Ólafsdóttir, varamaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. Heimsóknir í stofnanir á frístunda- og menningarsviði - 2209011
Nefndin heimsótti félagsmiðstöðina Þrumuna, Bókasafn Grindavíkur, Hópsskóla, íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar og Kvikuna menningarhús. Nefndin hitti forstöðumenn stofnanna og kynnti sér starfsemi þeirra.
2. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205244
Drög að samsstarfssamningi við Listvinafélag Grindavíkur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
3. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205232
Drög að samsstarfssamningi við Pílufélag Grindavíkur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
4. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205246
Drög að samsstarfssamningi við Láru Lind Jakobsdóttur lögð fram. Nefndin samþykkir samningsdrögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði.
5. Fjárhagsáætlun 2023 - Frístunda- og menningarsvið - 2209012
Eftir heimsóknir á stofnanir á frístunda- og menningarsviði leggur nefndin áherslu á eftirfarandi við gerð fjárhagsáætlunar 2023:
*Lokið verði við deiliskipulag íþróttasvæðisins og forhönnun sundlaugarsvæðisins.
*Ráðinn verði starfsmaður í 100% starfshlutfall í félagsmiðstöðina Þrumuna.
*Skipt verði um gervigras og undirlag í Hópinu í kjölfar mats úttektaraðila ef viðkomandi telur þörf á því.
*Bæta aðgengi að knattspyrnuvellinum og Hópinu þannig að aðgengi verði fyrir alla.
*Ráðinn verði starfsmaður í 50% starfshlutfall á Bókasafn Grindavíkur sem sinnir safni í Hópsskóla.
*Aukið fjármagn verði sett í viðhald og uppbyggingu leikvalla.
*Haldið verði áfram að styðja við menningarstarfsemi í Kvikunni.
6. Framtíð sundlaugarsvæðis - 2110014
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála varðandi forhönnun sundlaugarsvæðis.
Bæjarráð samþykkti á 1620. fundi sínum þann 6. september sl. að tillögur frístunda- og menningarnefndar sem samþykktar voru á 117. fundi nefndarinnar verði notaðar til grundvallar við hönnun svæðisins.
7. Gestastofa Reykjanes jarðvangs - 2111028
Hugmyndabók fyrir gestastofu Reykjanes Geopark í Kvikunni lögð fram.
8. Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík 2022 - 2201046
Dagskrá menningarhúsanna í Grindavík haustið 2022 lögð fram.
9. Viðburðir um jól og áramót 2022-2023 - 2209013
Rætt um viðburðahald um jól og áramót 2022-2023.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:10.