62. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, mánudaginn 18. júlí 2022 og hófst hann kl. 11:15.
Fundinn sátu: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Arnarhlíð 1 - Umsókn um lóð - 2206150
Sigvaldi Eiríkur Hólmgrímsson sækir um lóðina Arnarhlíð 1 til byggingar einbýlishúss.
Samþykkt.
2. Lóuhlíð 11-15 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, - 2207058
Betra Sport ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsum samkvæmt teikningum frá Arkís arkitektum dags. 30.06.2022.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30.