116. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 27. júní 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Sigríður Etna Marinósdóttir, formaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, varaformaður, Viktor Guðberg Hauksson, aðalmaður, Hulda Kristín Smáradóttir, aðalmaður, Auður Arna Guðfinnsdóttir, aðalmaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. Kynning á frístunda- og menningarsviði - 2206055
Varamenn í frístunda- og menningarnefnd þau Anna Elísa Karsldóttir Long, Þórunn Erlingsdóttir og Petra Rós Ólafsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóri kynnti starfsemi frístunda- og menningarsviðs. Einnig var farið yfir samþykkt fyrir frístunda- og menningarnefnd, samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar og siðareglur kjörinna fulltrúa Grindavíkurbæjar.
2. Starfsáætlun frístunda- og menningarnefndar 2022-2026 - 2206093
Rætt var um helstu verkefni frístunda- og menningarnefndar á kjörtímabilinu. Nefndin mun vinna starfsáætlun á fundi í haust.
3. Framtíð sundlaugarsvæðis - 2110014
Um miðjan maí var leitað eftir hugmyndum frá íbúum vegna endurhönnunar sundlaugarsvæðisins. Hugmyndir íbúa lagðar fram. Sviðsstjóra falið að vinna úr innsendum hugmyndum og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
4. Sjóarinn síkáti 2022 - 2201045
Sjóarinn síkáti fór fram 10.-12. júní sl. Hátíðin var vel sótt og gekk vel fyrir sig. Frístunda- og menningarnefnd þakkar öllum þeim sem komu að hátíðinni í ár fyrir sitt framlag.
5. Hátíðarhöld 17. júní 2022 - 2205009
Rætt var um hvernig til tókst með hátíðarhöld í tengslum við 17. júní.
6. Strandblakvöllur í Grindavík - 2206088
Lagt fram erindi frá grindvískum keppendum í strandblaki þar sem skorað er á sveitarfélagið að bæta aðstæður til strandblaks í Grindavík. Nefndin leggur til að erindið verði skoðað samhliða vinnu deiliskipulags fyrir íþróttasvæðið.
7. Skemmdir á innsiglingarvörðum af völdum jarðskjálfta - 2205265
Gömlu innsiglingarvörðurnar í Grindavík liggja undir skemmdum vegna jarskjálfta. Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
8. Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka - 2205234
Nökkvi Már Jónsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir frekari gögnum.
9. Umsókn um styrk vegna íþróttaafreka - 2205161
Þorleifur Ólafsson sækir um fræðslustyrk á grundvelli 7. gr. reglna um styrki vegna íþróttaafreka. Samþykkt að veita styrk að upphæð kr. 35.000.
10. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205104
Grindavíkurkirkja sækir um starfsstyrk fyrir barna- og unglingastarf 2023-2026 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
11. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205232
Pílufélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
12. Umsókn um starfsstyrk á frístunda- og menningarviði 2023 - 2205244
Listvinafélag Grindavíkur sækir um starfsstyrk 2023-2025 í samræmi við verklagsreglur um úthlutun starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
13. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Unglingadeildin Hafbjörg - 2205222
Innsend gögn frá Unglingadeildinni Hafbjörgu vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
14. Skil á upplýsingum vegna starfsstyrkja á frístunda- og menningarsviði - Hestamannafélagið Brimfaxi - 2205013
Innsend gögn frá Hestamannafélaginu Brimfaxa vegna starfsstyrks 2022 lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15.