Lokun gatna 10.-12. júní

  • Fréttir
  • 8. júní 2022

Nú styttist í Sjóarann síkáta, bæjarhátíð okkar Grindvíkinga sem að fram fer helgina 10.-12. júní nk. Líkt og undanfarin áður er meginþungi hátíðarhaldanna við Kvikuna, þ.e. á Hafnargötunni og á Seljabót milli Mánagötu og Ránargötu.

Vakin er athygli á þeim lokunum sem verða á svæðinu frá kl. 13:00 föstudaginn 10. júní til kl. 18:00 sunnudaginn 12. júní, eða á meðan hátíðarhöldunum stendur.

Settar verða upp lokanir/þrengingar á eftirfarandi stöðum:

  • Milli Hafnargötu 12 og 12a (Þorbjarnar og Kvikunnar)
  • Milli Hafnargötu 9a og 14 (Grindarinnar og Vísis)
  • Við gatnamót Mánagötu og Seljabótar (neðan við Þorbjörn)
  • Við gatnamót Ránargötu og Seljabótar (neðan við Vísi)

Hafnargötu verður hægt að keyra eftir að dagskrá lýkur á laugardegi og þar til hún hefst á sunnudagsmorgni. Búast má við því að þrengingar verði settar upp fimmtudaginn 9. júní.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!