Starfslýsing:
Grindavíkurbær leitar að starfskrafti í tímabundið fullt starf þjónustufulltrúa til að annast almenn skrifstofustörf. Nánar tiltekið felst starfið m.a. í móttöku þjónustuþega, símsvörun, upplýsingagjöf, aðstoð með umsóknir, skönnun skjala og umsjón með aðföngum.
Hæfniskröfur:
Stúdentspróf eða reynsla af skrifstofustörfum
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Grunnkunnátta í helstu tölvuforritum
Góð kunnátta í íslensku og ensku
Upplýsingar um starfið:
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs veitir upplýsingar um starfið í tölvupósti nmj@grindavik.is eða í síma 420-1100.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2022.