Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviđi 2023

  • Fréttir
  • 23. maí 2022

Grindavíkurbær veitir árlega starfsstyrki til einstaklinga, félagasamtaka og/eða stofnana á frístunda- og menningarsviði í gegnum samstarfssamninga. Stuðningurinn er í formi fjárframlaga og/eða afnota af húsnæði í eigu sveitarfélagsins. 

Markmið samninganna er að: 

  • Draga úr kostnaði við frístunda- og tómstundaiðkun barna og unglinga í Grindavík.
  • Styðja við starf með börnum á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðum skilningi.
  • Vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópum iðkenda.
  • Styðja við afreksstarf hjá íþróttafélögum í Grindavík.
  • Styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
  • Styðja við viðburðahald í Grindavík.
  • Styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar í Grindavík. 

Skipulagt frístunda- og menningarstarf þarf að uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum til þess að það teljist styrkhæft:

  • Starfsemin/viðburður skal vera opin íbúum í Grindavík. 
  • Starfsemin sé ekki rekin í ágóðaskyni. 
  • Starfsemin fellur að menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
  • Starfsemin fellur að frístundastefnu Grindavíkurbæjar.
  • Starfsemin fellur að íþróttastefnu Grindavíkurbæjar.
  • Aðilar, frístunda- og menningarstarf eða viðburður skal tengjast Grindavík með einhverjum hætti. 

Samningar Grindavíkurbæjar við félagasamtök á frístunda- og menningarviði gilda frá 1. janúar til 31. desember. Samningar eru ekki gerðir til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Allir samningar skulu hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest.

Eftirfarandi samningar eru í gildi á frístunda- og menningarsviði á árinu 2023

  • Aðalstjórn UMFG (rennur út 31.12.2024)
  • Björgunarsveitin Þorbjörn (rennur út 31.12.2023)
  • Félag eldri borgara í Grindavík (rennur út 31.12.2025)
  • Golfklúbbur Grindavíkur (rennur út 31.12.2025)
  • GG knattspyrnufélag (rennur út 31.12.2025)
  • Grindavíkurskip (rennur út 31.12.2023)
  • Hestamannafélagið Brimfaxi (rennur út 31.12.2025)
  • Íþróttafélagið Nes (rennur út 31.12.2025)
  • Knattspyrnudeild UMFG (rennur út 31.12.2023)
  • Kvennakór Grindavíkur (rennur út 31.12.2025)
  • Minja- og sögufélag Grindavíkur (rennur út 31.12.2025)
  • Slysavarnardeildin Þórkatla (rennur út 31.12.2025)
  • Unglingadeildin Hafbjörg (rennur út 31.12.2025)

Umsóknum vegna ársins 2023 skal skilað eigi síðar en 31. maí nk. Umsóknir verða lagðar fyrir frístunda- og menningarnefnd sem gerir tillögu til bæjarráðs eigi síðar en 15. september.

Umsóknareyðublað má finna á íbúagátt Grindavíkurbæjar. Hérna má finna verklagsreglur vegna styrkjanna. 

Allar nánari upplýsingar veitir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs gegnum netfangið eggert@grindavik.is. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir