Fundur 1609

  • Bćjarráđ
  • 20. apríl 2022

1609. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 19. apríl 2022 og hófst hann kl. 15:00.

Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Gunnar Már Gunnarsson, varamaður, Páll Valur Björnsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Siggeir Fannar Ævarsson, varamaður og Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður.

Einnig sat fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri. 

Fundargerð ritaði: Fannar Jónasson, bæjarstjóri.

Dagskrá:

1. Gestastofa Reykjanes jarðvangs - 2111028
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Á fundinn mættu Hringur Hafsteinsson og Tobia Zambotti, sem var með gegnum Teams, frá hönnunarfyrirtækinu Gagarín. 

Lagðar fram rýmistillögur frá Gagarín vegna gestastofu Reykjanes jarðvangs í Kvikunni. 

Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviða að vinna málið áfram út frá tillögu A. 

2. Húsnæðsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar - 2204050
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Til umfjöllunar voru húsnæðis- og starfsaðstæður skólaþjónustu, félagsþjónustu og barnaverndar. 

Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjórum bæjarfélagsins, bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna málið áfram. 

3. Fyrirspurn um lóð við Suðurgarð - 2202058
Fulltrúar Sæbýlis ehf. mættu á fundinn og kynntu starfsemi félagsins við Ægisgötu 1 og áform um stækkun m.a. vegna fyrirspurnar um lóð við Suðurgarð. Undir dagskrárliðnum sátu sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og nefndarmenn í 
skipulagsnefnd.

4. Samningur um mötuneyti Grunnskóla Grindavíkur - 2201006
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
 
Skólamatur ehf. hefur sagt upp samningi við Grindavíkurbæ og tekur uppsögnin gildi eftir lok líðandi skólaárs. 

Bæjarráð samþykkir að semja við Skólamat ehf. til allt að þriggja ára með uppsagnarákvæði og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram. 

5. Félagsaðstaða eldri borgara - hönnun og undirbúningur - 2102060
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Hönnun á félagsaðstöðu eldri borgara tekin til umræðu. Vinnsluteikningar af innréttingum lagðar fram.

6. Samþykkt um gatnagerðargjöld - tillaga að breytingu - 2204001
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Skipulagsnefnd leggur til breytingar á samþykkt um gatnagerðargjöld. Bæjarráð tekur undir fram komnar tillögur og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn. 

7. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu - 2204002
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Skipulagsnefnd leggur til breytingar á reglum um lóðarúthlutanir. Bæjarráð tekur undir fram komnar tillögur og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn. 

8. Flutningshús til Grindavíkur - 2204017
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 
Félagið Langeldur ehf. óskar eftir samráði við Grindavíkurbæ um fyrirhugaðar framkvæmdir við flutning og endurbyggingu Hendrikshúss sem í dag er við Strandgötu 17 í Hafnarfirði. 

Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram og leggja niðurstöðuna fyrir bæjarráð að nýju. 

9. Kvikmyndataka á Kleifarvatnsleið á Reykjanesi - 2204062
Félagið Truenorth hefur tekið að sér kvikmyndatöku á Kleifarvatnsleið og óskar eftir að gerður verði samningur vegna verkefnisins. 

Grindavíkurbær getur ekki skrifað undir samninginn sem leigusali þar sem landið er ekki í eigu bæjarfélagsins.

10. Framtíð sundlaugarsvæðis - 2110014
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um þróun hugmynda að framtíð sundlaugarsvæðis undanfarna tvo áratugi lagt fram ásamt bókun 114. fundar frístunda- og menningarnefndar. 

Sigurður Óli leggur til að ráðist verði í frumhönnun á sundlaugarsvæði á sama tíma og unnið verður að gerð deiliskipulags íþróttasvæðis. Tilgangurinn er sá að flýta mögulegri uppbyggingu á svæðinu. Bæjarráð tekur undir tillöguna og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram. 

11. Leiksvæði í Grindavík - 2108028
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og forstöðumaður íþróttamannvirkja sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Drög að framtíðarsýn fyrir leikvelli í Grindavík lögð fram. Frístunda- og menningarnefnd hefur áður samþykkt framtíðarsýnina fyrir sitt leyti. Bæjarráði lýst vel á þær tillögur sem fram koma í skjalinu. 

12. Flöggun á vegum Grindavíkurbæjar - 2203117
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Minnisblað um flöggun á vegum Grindavíkurbæjar lagt fram. Frístunda- og menningarnefnd telur vanta fánastangir við innkomu í bæinn auk meira áberandi fánastangar miðsvæðis sem væri "aðalfánastöng" bæjarins sem hægt væri að nýta við ýmiss konar tilefni, t.d. á 17. júní.

13. Sjómannadagsblað Grindavíkur - 2204055
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 

Borist hefur erindi frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur þar sem þess er farið á leit að Grindavíkurbær kosti dreifingu á sjómannadagsblaðinu. 

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu. 

14. Jafnlaunakönnun 2022 - 2203060
Niðurstaða úttektarteymis iCert, að lokinni viðhaldsúttekt, er að rekstur og viðhald jafnlaunakerfis Grindavíkurbæjar hefur gengið vel og uppfyllir þær kröfur sem gerðar 
eru til þess samkvæmt IST-85.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FUNDARGERĐIR

Bćjarstjórn / 17. apríl 2024

Fundur 564

Skipulagsnefnd / 10. apríl 2024

Fundur 131

Bćjarstjórn / 4. apríl 2024

Fundur 562

Bćjarstjórn / 10. apríl 2024

Fundur 563

Bćjarstjórn / 26. mars 2024

Fundur 561

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 21. febrúar 2024

Fundur 129

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Skipulagsnefnd / 25. mars 2024

Fundur 130

Bćjarstjórn / 19. mars 2024

Fundur 560

Bćjarstjórn / 12. mars 2024

Fundur 559

Bćjarstjórn / 5. mars 2024

Bćjarstjórn / 20. febrúar 2024

Fundur 556

Bćjarstjórn / 13. febrúar 2024

Fundur 555

Bćjarstjórn / 8. febrúar 2024

Fundur 554

Bćjarstjórn / 30. janúar 2024

Fundur 553

Bćjarstjórn / 23. janúar 2024

Fundur 552

Bćjarstjórn / 16. janúar 2024

Fundur 551

Bćjarstjórn / 9. janúar 2024

Fundur bćjarstjórnar nr. 550

Bćjarstjórn / 29. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 549

Bćjarstjórn / 27. desember 2023

Fundur bćjarstjórnar nr. 548

Bćjarráđ / 5. desember 2023

Fundur 1659

Bćjarstjórn / 28. nóvember 2023

Fundur 547

Bćjarráđ / 7. nóvember 2023

Fundur 1658

Bćjarstjórn / 31. október 2023

Fundur 544

Afgreiđslunefnd byggingamála / 17. október 2023

Fundur 78

Skipulagsnefnd / 16. október 2023

Fundur 127

Frćđslunefnd / 12. október 2023

Fundur 136

Frćđslunefnd / 21. september 2023

Fundur 135