113. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 16. mars 2022 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Garðar Alfreðsson, aðalmaður, Þórunn Erlingsdóttir, aðalmaður, Alexander Veigar Þórarinsson, aðalmaður, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, formaður,
Sigríður Etna Marinósdóttir, aðalmaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2022 - 2202054
Rætt um tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2022.
2. Sjóarinn síkáti 2022 - 2201045
Drög að dagskrá hátíðarinnar lögð fram.
3. Lýðheilsustefna Grindavíkurbæjar - 2012025
Drög að lýðheilsustefnu Grindavíkurbæjar lögð fram.
4. Fjölþætt heilsuefling 65+ - 2202089
Staða verkefnisins kynnt eftir tveggja ára heilsueflingu meðal eldri Grindvíkinga.
5. Fundargerðir ungmennaráðs 2022 - 2202023
Fundargerð 46. fundar ungmennaráðs lögð fram.
6. Lýðheilsuteymi - 6 - 2202009F
Fundargerð 6. fundar lýðheilsuteymis lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.