Hringjum inn jólin kl. 18:00
Fólk er velkomið til kirkju samkvæmt sóttvarnarreglum er leyfilegt að skipta kirkjunni í þrjú sóttvarnarhólf og í hverju hólfi mega vera 50 manns. Grímuskylda.
Þetta er hátíðarmessa þar sem Kór Grindavíkurkirkju og organisti leiða sönginn. Melkorka Ýr söngkona syngur ,Ó, helga nótt.
Þessari messu verður líka streymt á facebook síðu Grindavíkurkirkju
Miðnæturstund kl. 23:30
Við göngum inn í hina helgu nótt og allt það sem hún ber með sér inn í lífið Kristján Hrannar organisti, Gígja Eyjólfsdóttir og Atli Geir Júlíusson leiða sönginn og stundina ásamt sr. Elínborgu.
Leyfilegt er samkvæmt sóttvarnarreglum að skipta kirkjunni í þrjú sóttvarnarhólf og í hverju hólfi mega vera 50 manns. Grímuskylda.