56. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 8. desember 2021 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Sigurveig Margrét Önundardóttir, aðalmaður,
Klara Bjarnadóttir, aðalmaður,
Margrét Kristín Pétursdóttir, varamaður
Formaður, Sigríður Etna boðaði forföll.
Fundargerð ritaði: Kristín María Birgisdóttir, Upplýsinga- og markaðsfulltrúi.
Dagskrá:
1. Deiliskipulag við Þorbjörn - 2110060
Skipulagslýsing vegna deiliskipulagsbreytingar fyrir Þorbjörn og svæðið í kring lögð fram. Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið fyrir nefndarfólki.
2. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar - golfvöllur, stígur og hreinsivirki - 2110076
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu vegna golfvallar, stígs vestan við Grindavík og hreinsivirkis við Eyjabakka lögð fram. Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti málið fyrir nefndarfólki.
3. Skiltahandbók - 2112043
Í undirbúningi er kortlagning og framleiðsla á sameiginlegri skiltahandbók fyrir sveitarfélög á Reykjanesi. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi kynnti stöðuna á verkefninu.
4. Sveitarfélögin og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna - 2106090
Grindavíkurbær hefur skipað þrjá fulltrúa í jafnmarga vinnuhópa sem falið er að fylgja eftir forgangsverkefnum Suðurnesjavettvangs. Fulltrúar Grindavíkurbæjar verða þrír í jafn mörgum hópum: Atli Geir Júlíusson, Eggert Sólberg Jónsson og Ásrún Helga Kristinsdóttir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.