Ţorsteinn Michael í öđru sćti í Rímnaflćđi

  • Fréttir
  • 30. nóvember 2021

Rímnaflæði 2021 fór fram í netkosningu UngRUV.is á dögunum. Félagsmiðstöðin Þruman í Grindavík átti þar fulltrúa, Þorstein Michael sem flutti lagið Lil Stony. Þorsteinn gerði það heldur betur gott og hreppti annað sætið í keppninni. 

Rímnaflæði, rappkeppni unga fólksins, var fyrst haldin í Miðbergi árið 1999. Keppnin hefur verið stökkpallur ungra og efnilegra rappara úr félagsmiðstöðvum, víðsvegar að af landinu, til að skapa sér nafn í tónlistarheiminum. T.d. má nefna Emmsjé Gauta sem náð hefur góðum árangri í íslensku tónlistarsenunni og er einn þekktasti rappari  landsins í dag.

Rímnaflæði hefur skapað sér fastan sess í dagskrárliðum félagsmiðstöðva um leið og hún vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Á hverju ári sjáum við nýja og efnilega rappara sem sýna frábæra hæfileika í laga- og textasmíð. Keppendur í Rímnaflæði verða að vera á grunnskóla aldri (8. - 10. bekk). Skilyrði er að textar séu samdir af keppendum, en lög og taktar þurfa ekki að vera frumsamin. Það er ljóst að framtíðin í rappinu er björt og eru margir efnilegir rapparar að taka sín fyrstu skref á sviði í þessari keppni. Textar sem fela í sér hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu, jákvæða umsögn um neyslu áfengis og annara fíkniefna eru bannaðir. Hægt er að vísa keppendum frá ef um gróft brot er að ræða.

Þar sem þátttaka í keppni eins og Rímnaflæði er mikilvægt lærdómsferli fyrir ungt fólk, sem oft er að stíga sín fyrstu skref í að koma fram, þá eru haldin ókeypis rappnámskeið í aðdraganda keppninnar þar sem öllu ungu fólki er boðið að taka þátt.

Sigurvegari Rímnaflæði 2021 var valinn í netkosningu á UngRUV.is sem stóð yfir í nokkra daga, frá sl. föstudag til mánudagsins 29. nóvember. 

Við óskum Þorsteini innilega til hamingju með frábæran árangur! 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir