1593. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 5. október 2021 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi. Helga Dís Jakobsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sævar Þór Birgisson,varamaður.
Einnig sátu fundinn:
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Skjalastefna Grindavíkur - 2106003
Skjalastefna Grindavíkurbæjar lögð fram. Bæjarráð samþykkir framlagða skjalastefnu og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
2. Tækifærisleyfi - Körfuknattleiksdeild Grindavíkur - 2109123
Málinu er frestað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Bláa Lónið - starfsmannamál - 2110002
Umræður um stöðu mála. Bókun frá fulltrúa B-lista Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins harmar þá ákvörðun að færa skrifstofustörf úr Bláa lóninu við Svartsengi á höfuðborgarsvæðið. Hefðbundin skrifstofustörf eru ekki mörg á svæðinu, og hvetjum við Bláa lónið sem og önnur fyrirtæki á Reykjanesi til að halda skrifstofustörfum heima í héraði.
4. Fjárhagsáætlun 2022-2025 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2107043
Tillögur forstöðumanna vegna fjárhagsáætlunar 2022-2025 eru lagðar fram ásamt málaflokkayfirliti 2016-2022.
5. Bílastæði - Ósk um stækkun stæða til móts við Hafnargötu 4-6 - 2109055
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við samkomulagið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.