Grindavíkurbær afhenti í ár í fyrsta sinn hvatningarverðlaun til unglinga sem hafa sýnt áhuga á menningarmálum. Unglingarnir sem hljóta þessi verðlaun skulu hafa sýnt góða ástundun, góða hegðun, vera góður félagi og teljast góð fyrirmynd annarra unglinga.
Í ár hlutu tveir unglingar hvatningarverðlaun Grindavíkurbæjar, þau Eydís Steinþórsdóttir fiðlunemandi og Jón Emil Karlsson söngnemandi. Bæði voru þau tilnefnd af Tónlistarskóla Grindavíkur.
Í umsögn um Eydísi, sem er fiðluleikari, kemur fram að hún er fyrirmyndarnemandi, samviskusöm og dugleg. Hún hefur komið víða fram fyrir hönd skólans og tekið þátt í margskonar samspili þar sem hún hefur verið yngri strengjanemendum góð fyrirmynd í tónlistarnámi.
Jón Emil hlaut hvatningarverðlaunin fyrir nám sitt í söng. Hann er glaðvær, jákvæður og góður félagi. Hann hefur með flottri sviðsframkomu heillað marga og verið góð fyrirmynd drengja í tónlistarnámi. Hann hefur eins og Eydís komið víða við fyrir hönd skólans.
Þau Eydís og Jón Emil fengu viðurkenningar sínar afhentar á skólaslitum Tónlistarskólans í vor.