53. fundur Afgreiðslunefndar byggingarmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, miðvikudaginn 15. september 2021 og hófst hann kl. 13:00.
Fundinn sátu:
Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi
David Ingi Bustion, starfsmaður tæknideildar
Fundargerð ritaði: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Efrahóp 19 - Umsókn um byggingarleyfi - 2108107
Hrannar Jón Emilsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús samkvæmt teikningum frá JeES arkitektum dags. 23. júní 2021.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
2. Víkurhóp 41-49 - Umsókn um byggingarleyfi - 2109038
Eignarhaldsfélagið Normi ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhús samkvæmt teikningum frá Arkitektastofu Þorgeirs dags. 1. ágúst 2021.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
3. Víkurhóp 51-59 - Umsókn um byggingarleyfi - 2109039
Eignarhaldsfélagið Normi ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir raðhús samkvæmt teikningum frá Arkitektastofu Þorgeirs dags. 1. ágúst 2021.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
4. Efrahóp 23 - Umsókn um lóð - 2109084
Premium Properties ehf. sækir um lóðina Efrahóp 23 til byggingar einbýlishúss.
Samþykkt.
5. Efrahóp 25 - Umsókn um lóð – 2109085
Premium Properties ehf. sækir um lóðina Efrahóp 25 til byggingar einbýlishúss.
Samþykkt.
6. Efrahóp 27 - Umsókn um lóð - 2109086
Premium Properties ehf. sækir um lóðina Efrahóp 27 til byggingar einbýlishúss.
Samþykkt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30.