Upp er komin almennings hleðsluaðstaða við Hotel Volcano (gamla Festi). Hilmir Ingi Jónsson er eigandi Hleðsluvaktarinnar ásamt konu sinni Svanhildi Björk Hermannsdóttur en þau reka fjögur græn almennings hleðslustæði fyrir rafbíla við Hotel Volcano. "Við bjóðum öllum með lögheimili í Grindavík að hlaða rafbílinn sinn með 20% afslætti. Bæjarbúar geta því fyllt t.d. 50 kWst rafbílinn sinn fyrir aðeins 1.060 kr. frá tómu batteríi og komist allt að 320 km á hleðslunni. Það kostar þá aðeins 331 kr. að keyra hverja 100 km og árlegur akstur uppá 15.000 km kostar þá aðeins 49.500 kr. ef hlaðið er með Hleðsluvaktinni hjá Hotel Volcano. Til samanburðar kostar 1.645 kr. að aka 100 km á dísel bíl sem eyðir 7 lítrum á 100 km á 235 kr. líterinn eða 246.750 kr. á ári miðað við 15.000 km," segir Hilmir
Til þess að hlaða rafbílinn við Hotel Volcano þarf aðeins að sækja símaappið 'Smappee Energy Monitor' í Google Play eða iOS App store og til að virkja afsláttinn þarf að senda notendanafnið á símaappinu ásamt lögheimilisfangi á info@hledsluvaktin.is.
"Hleðsluvaktin vill með þessu bæta hleðsluaðstöðu fyrir bæjarbúa Grindavíkur og gera þeim sem búa í fjölbýli án hleðsluaðstöðu kleift að hlaða rafbílinn yfir vinnutímann eða yfir nótt á ódýran hátt," segir Hilmir.
Leiðbeiningar til þess að hefja hleðsluna eru á hleðslustöðvunum en það þarf aðeins að skanna QR kóðann ofaná hleðslustöðinni með símaappinu. Það eru áfastir Type 2 hleðslukaplar á hleðslustöðvunum svo það er þægilegt að byrja að hlaða. Eftir að rafbíllinn er fullhlaðinn stöðvast hleðslugjaldið en gjald uppá 26 kr. fyrir hverja klukkustund heldur áfram þar til rafbíllinn er aftengdur hleðslustöðinni.
Hleðsluvaktin er grindvískt og ört vaxandi fyrirtæki á Íslandi með hleðslustöðvar fyrir heimili og sumarhús og hleðslulausnir fyrir fjölbýli og fyrirtæki. Hleðslustöðvarnar frá Hleðsluvaktinni hafa unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna, t.d. þýsku iF Design Award 2021 fyrir hönnun og kerfisstjórn.
Fyrir frekari upplýsingar má skoða www.hledsluvaktin.is, hringja í 513 1900, spjalla á Facebook @hledsluvaktin eða senda tölvupóst á info@hledsluvaktin.is.
Hér má sjá hvar hleðslustöðvarnar eru staðsettar norðaustan megin við Hotel Volcano