Félagsaðstaða eldri borgara í Grindavík - útboð á verkfræðihönnun

  • Skipulagssvið
  • 8. júlí 2021

Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í heildarhönnun verkfræðinga vegna nýbyggingar félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð í Grindavík, ásamt tengingum við núverandi byggingu. Tilboð skal fela í sér fullnaðarhönnun verkfræðinga á öllum verkþáttum sem nauðsynlegir eru til að fullgera bygginguna tilbúna til notkunar.

Verkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu, ásamt þeim gögnum sem þar er vísað til.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent, án greiðslu, í rafræna útboðskerfinu www.tendsign.is á vefslóðinni www.tendsign.is frá og með 8.júlí 2021 kl. 12:00. 

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti í framangreindu útboðskerfi eigi síðar en kl 11:00 þann 23.júlí 2021. 

Nýskráning fyrirtækja á útboðskerfinu www.tendsign.is hefst með því að smella á "stofna aðgang".

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvefinn Tendsign. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur heldur verður niðurstaða útboðs send bjóðendum að loknu útboði, þá verður niðurstaða útboðs birt á heimasíðu Grindavíkurbæjar. 
 

Yfirlit yfir verkið:

Byggingin verður um 1.120 fermetrar, til viðbótar má reikna með allt að 100 fermetra tæknirými. Byggingin verður byggð að og samtengd við eldra húsnæði dvalar og hjúkrunarheimilisins Víðihlíð. Gert er ráð fyrir að húsið verði staðsteypt með steyptri þakplötu. Útfærslur geta breyst við framvindu forhönnunar til samræmis við ráðgjöf hönnuða. Miðað er við að framkvæmdin  verði boðin út í tveimur áföngum, í fyrri áfanga er byggingin fullbúin að utan með lóð, en aðeins fyrsta hæð fullgerð að innan. Í öðrum áfanga verði boðinn út fullnaðarfrágangur annarrar hæðar að innan.

Helstu verkþættir eru:
•    Forhönnun 
•    Hönnun burðavirkja og grundunnar
•    Hönnun lagnakerfi
•    Hönnun loftræsikerfa
•    Hönnun rafkerfa
•    Hönnun lýsingar
•    Brunahönnun
•    Hönnun hljóðvistar
•    Jarðvegsrannsóknir og jarðtækniskýrsla
•    Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlunar


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum