Veruleg aukning hefur orðið í hraunrennsli í Fagradalsfjalli síðustu vikuna og gosið virðist tvöfalt öflugra en það hefur verið lengst af. Að sama skapi hefur gaslosun einnig aukist og gosefni að berast hærra upp í andrúmsloftið og lengra en áður. Á þessari mynd úr Sentinel 5P gervitunglinu frá laugardeginum 8. maí, sést vel hversu langt gasmengun getur borist út fyrir landsteinana. Á myndinni hefur tunglið mælt SO2 í andrúmsloftinu í um 450 kílómetra fjarlægð suður af gosstöðvunum við Fagradalsfjall.