Opiđ fyrir umsóknir í Skólasel fyrir skólaáriđ 2021-2022

  • Fréttir
  • 11. maí 2021

Skráning er hafin í Skólsel fyrir komandi vetur og fer hún fram í gegnum íbúagátt Grindavíkurbæjar. Skráning fyrir veturinn 2021-2022 verður opin til og með 10. júní. Börn skráð eftir þann tíma fara á biðlista. Í Skólaseli er boðið upp á skóladagvist fyrir nemendur í 1. - 3. bekk. Þar gefst foreldrum tækifæri til að lengja veru barna sinna í skólanum eftir að kennslu lýkur til kl: 16:00. Einnig er hægt að kaupa 15 mínútur aukalega, eða til 16:15.

Markmið starfsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins, foreldra og atvinnulífs með því að skapa börnunum öruggan og notalegan samastað að skóla loknum. Dagurinn skiptist í frjálsan leik úti og inni og skipulagt starf svo sem föndur, leiki ofl. Lögð er áhersla á friðsamleg og jákvæð samskipti barna og fullorðinna og að dvölin geti verið lærdómsrík og skemmtileg.

Lokað er í vetrar-, jóla- og páskafríi, einnig á árshátíðardegi og vorgleði. Á öðrum skóladögum, þar sem vikið er frá venjulegu skipulagi s.s. á öskudegi og þemadögum opnar Skólasel um leið og dagskrá skóladagsins lýkur. Lokað er á starfsdögum.

Gjaldskrá Skólasels er hér fyrir neðan. Greiða þarf fyrirfram hvern mánuð. Boðið er upp á hressingu. Verð á hressingu er 260 kr. fyrir hvern dag vistunar. 

Allar upplýsingar fást hjá Sigurbjörgu umsjónarmanni Skólasels í síma 6607321 eða á póstfangið sigurbjorg@grindavik.is til 9. júní eða Guðbjörgu Sveinsdóttur, skólastjóra á netfangið gudbjorgms@grindavik.is

Reglur um þjónustu frístundaheimilis við Grunnskóla Grindavíkur

Hægt er að kaupa áskrift að Skólaselinu samkvæmt eftirfarandi:

Allir dagar til kl. 15:00 - (13.980 kr.- 1.ágúst 2021) + síðdegishressing
Allir dagar til kl. 16:00 - (20.470 kr.- 1.ágúst 2021) + síðdegishressing
Síðdegishressing 260 kr. (1.ágúst 2021)

Afsláttarreglur, gilda með leikskóla og vistun hjá dagforeldri:

Systkinaafsl. 2. barn  35%
Systkinaafsl. 3. barn 70%
Systkinaafsl. 4. barn og fleiri 100%


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun