Á dögunum var lögð lokahönd á nýjan göngu- og hjólastíg upp að golfvelli frá Bótinni. Um er að ræða 4 km langan stíg sem jarðvegsverktakinn Jón & Margeir sá um að leggja. Heildarkostnaður verksins er u.þ.b. 80 milljónir króna en Vegagerðin greiðir helming þess kostnaðar. Mikil ánægja er meðal íbúa bæjarins með stíginn og þegar orðin nokkuð umferð gangandi og hjólandi vegfarenda um stíginn.
Það er óhætt að segja að hér sé komin kærkomin viðbót í göngustígakerfi bæjarins sem nú þegar er orðið stórgott.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær sunnudaginn 9. maí.