Laus störf viđ leikskólann Laut

  • Lautarfréttir
  • 26. apríl 2021

Deildarstjóra,  leikskólakennara , þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá 11.ágúst næstkomandi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Leikskólinn er fjögra  deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun

• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg

• Færni í samskiptum

• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi
Grindavík er góður bær :) Fjölskylduvænn staður þar sem ungir sem gamlir hafa nóg að sýsla, svo er Grindavíkurbær þekktur fyrir frábært íþróttastarf. Leikskólinn Laut er þekktur fyrir frábæran starfsmannahóp sem er glaðlyndur og samstíga í leik og starfi.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is

Endurnýja þarf eldri umsóknir. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2021


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!