Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna Suðurnesjalínu 2 ásamt gögnum

  • Skipulagssvið
  • 16. apríl 2021

Í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123 frá 2010 samþykkti sveitarstjórn Grindavíkurbæjar, þann 30. mars 2021, Landsnet hf. framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 sem liggur innan sveitarfélagamarka Grindavíkur. Framkvæmdarleyfið var gefið út þann 16. apríl 2021 í samræmi við ákvæði skipulagslaga og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772 frá 2012. Álit Skipulagsstofnunar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, skv. ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106 frá 2000, liggur fyrir í áliti Skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2020.

Skilyrðum um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna Suðurnesjalínu 2 í Grindavíkurbæ, samkvæmt 11.gr reglugerðar um framkvæmdaleyfi, hefur verið fullnægt, þ.e. veiting framkvæmdaleyfis hefur verið samþykkt af leyfisveitanda og framkvæmdaleyfisgjald hefur verið greitt. 

Framkvæmdaleyfið og tengd gögn má nálgast hér að neðan eða hjá skipulagsfulltrúa á netfangið atligeir@grindavik.is eða í síma 4201100.

Í samræmi við 4. gr. laga nr. 130 frá 2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, er vakin athygli á því að þeir sem eiga lögvarinna hagsmuna að gæta sem og umhverfis- og útivistarsamtök með minnst 30. félaga, enda samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að, geta kært útgáfu leyfisins innan mánaðar frá birtingu auglýsingar í lögbirtingablaðinu sem er fyrirhuguð 16. febrúar nk. til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, sjá nánar heimasíðu nefndarinnar uua.is.

Áður útgefið framkvæmdaleyfi vegna framkvæmdarinnar hefur verið afturkallað af sveitarstjórn Grindavíkurbæjar.

Framkvæmdaleyfið og tengd gögn má nálgast á heimasíðu Grindavíkurbæjar  eða hjá skipulagsfulltrúa á netfangið atligeir@grindavik.is eða í síma 4201100.

Í samræmi við 4. gr. laga nr. 130 frá 2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, er vakin athygli á því að þeir sem eiga lögvarinna hagsmuna að gæta sem og umhverfis- og útivistarsamtök með minnst 30. félaga, enda samrýmist tilgangi samtakanna að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að, geta kært útgáfu leyfisins innan mánaðar frá birtingu auglýsingar í lögbirtingablaðinu sem er fyrirhuguð 22. apríl nk. til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, sjá nánar heimasíðu nefndarinnar uua.is.

Gögn vegna framkvæmdaleyfisins eru hér að neðan: 

•    Afgreiðsla leyfisveitanda ásamt árituðu leyfisbréfi, greinagerð bæjarstjórnar og áriðum uppdráttum. 

Gögn frá Landsnet:
1.    Umsókn um framkvæmdaleyfi dags. 29. mars 2021
2.    Greinargerð með umsókn um framkvæmdaleyfi frá september 2020
3.    Kortahefti / Hönnunargögn frá september 2020
4.    Bréf framkvæmdaraðila, vegna náttúruvár og legu valkosta, dags. 28.maí 2020
5.    Matsskýrsla framkvæmdar frá september 2019
6.    Álit Skipulagsstofnunar dags. 22. apríl 2020
7.    Viðbrögð við umsögnum og athugasemdum sem bárust við frummatsskýrslu.
8.    Hér er heimasíðu verkefnisins 
9.    Greinargerð Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands um náttúruvá á framkvæmdasvæði Suðurnesjalínu 2 dags.19. október 2018

10.    Rýni verkfræðistofunnar EFLU á skýrslu Jarðvísindastofnunar HÍ dags. 2. júlí 2020

Grindavík, 16. apríl 2021.
F.h. Grindavíkurbæjar,
Atli Geir Júlíusson skipulagsfulltrúi.


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum