Grindavíkurbær hefur auglýst til umsóknar sumarstörf fyrir ungmenni fædd 2003, 2002 og 2001. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl. Sjá nánar hér.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Vinnuskóla Grindavíkur í sumar. Vinnuskólinn er fyrir 14-17 ára ungmenni fædd árin 2004, 2005, 2006 og 2007, þ.e. fyrir 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla. Skráningu lýkur föstudaginn 16. apríl. Sjá nánar hér.