Nú hefur tilkynnt um það hvaða sjónvarps- og kvikmyndaverk hljóta tilnefningu til Edduverðlauna árið 2021. Sjónvarpsþáttaröðin Brot er hlutskörpust með fimmtán tilnefningar, kvikmyndin Gullregn fær tólf tilnefningar og sjónvarpsþættirnir Ráðherrann sjö.
Þáttaröðin BBQ kóngurinn sem sýndur er á Stöð 2 og er tekin upp hér í Grindavík er tilnefndur til Eddunnar í flokknum mannlífsþættir. Það kemur ekki á óvart enda er þátturinn mjög vinsæll og hefur hlotið mikið lof. Það er Grindvíkingurinn Alfreð Fannar Björnsson sem sýnir landsmönnum hinar ýmsu hugmyndir af grillmat og hvernig hægt er að nýta bæði kola- og gasgrillin, allan ársins hring í öllum veðrum.
Innsend verk voru fjölmörg að þessu sinni, en þegar innsendingafresti lauk þann 11. febrúar höfðu framleiðendur sent alls 146 verk inn í keppnina. Að auki voru 319 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2020 til 31. desember 2020. Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni síðan árið 1999.
Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 99 talsins. Innsendar kvikmyndir eru 7 og stuttmyndir 11. Heimildarmyndir eru 19 og 17 verk flokkast undir barna- og unglingaefni.
Það var í höndum ellefu valnefnda að fara yfir öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd eru í samtals 27 verðlaunaflokkum Eddunnar. Endanleg val er svo í höndum Akademíumeðlima.
Tilnefningar til Eddunnar 2021 má finna hér á vef RÚV.