Það voru 18 karlar og 6 konur sem tóku þátt í Grindavíkurmeistaranum 2021 sem haldinn var í dag í fyrsta skipti. Dregið var í 2 kvennariðla og 4 karlariðla og komust 4 konur og 16 karlar áfram í útsláttarhluta mótsins.
Á Facebook síðu Pílufélags Grindavíkur má bæði finna umfjöllun um mótið ásamt myndum. Árdís Sif Guðjónsdóttir sigraði í kvennaflokki en hún sigraði systur sína Snædísi Sif Guðjónsdóttir í undanúrslitum 3-2 þar sem báðar áttu pílur til að sigra. Árdís tryggði sig þannig í úrslitaleik kvenna en þar mætti hún Svanhvíti sem sigraði Söndru Dögg Guðlaugsdóttir nokkuð örugglega 3-0 í seinni undanúrslitaleiknum.
Úrslitaleikurinn var spennandi og áttu bæði Svanhvít og Árdís pílur til að sigra en það var Árdís sem tók út 16 fyrir sigrinum. Árdís var með 35,66 í meðaltal
Í karlaflokki sigraði Matthías Örn Friðriksson. Hann byrjaði á spennandi leik í 16 manna úrslitum á móti Scott Ramsay og fór sá leikur 3-2. Matthías vann Einar Helga Gunnarsson örugglega 4-0 í fjórðungsúrslitum en undanúrslitaleikurinn var æsispennandi. Þar mætti hann Pétri Rúðrik Guðmundssyni og fór leikurinn 5-4. Báðir spilarar áttu pílur til að sigra en Matthías hitti að lokum og var því kominn í úrslit.
Björn Steinar Brynjólfsson sigraði Hallgrím Jónsson í 16 manna úrslitum 3-1, Alexander Þorvaldsson 4-3 þar sem báðir spilarar gátu unnið og vann síðan sterkan sigur á Herði Þór Guðjónssyni í undanúrslitunum 5-1.
Úrslitaleikurinn var algjör einstefna en Matthías sigraði þann leik 6-0 og varð því fyrsti Grindavíkurmeistari karla en hann var með 74,10 í meðaltal.
Pílufélag Grindavíkur vill að lokum þakka öllum þeim sem komu að mótinu á einn eða annan hátt og öllum þeim sem tóku þátt í dag!
Kvennaflokkur
1. sæti Árdís Sif Guðjónsdóttir
2. sæti Svanhvít Helga Hammer
3. sæti Snædís Ósk Guðjónsdóttir
Karlaflokkur
1. sæti Matthías Örn Friðriksson
2. sæti Björn Steinar Brynjólfsson
3. sæti Hörður Þór Guðjónsson