Jólamót Stöðvar 2 í pílukasti fór fram 6. desember síðastliðinn og var sýnt í sjónvarpinu á jóladag og öðrum degi jóla. Forsvarsmenn Stöðvar 2 buðu tólf þátttakendum á mótið en af þeim voru sex Grindvíkingar. Það var Íslandsmeistarinn Matthías Örn Friðriksson sem bar sigur úr bítum eftir mjög jafna úrslitaviðureign gegn Herði Þór Guðjónssyni. Þeir Grindvíkingar sem tóku þátt í mótinu voru:
Matthías Örn Friðriksson
Pétur Rúðrik Guðmundsson
Hörður Þór Guðjónsson
Alex Máni Pétursson
Alexander Veigar Þorvaldsson
Björn Steinar Brynjólfsson
Það er gaman að segja frá því að oft var tekið fram í útsendingu að Grindavík væri orðin Mekka pílunnar á Íslandi. Það er ekki að undra enda margir mjög færir píluspilarar sem koma héðan eins og talið er upp hér að ofan en bæði hafa Pétur Rúðrik og Matthías Örn hampað Íslandsmeistaratitli í 501 sem er algengasti píluleikurinn. Þá hefur Guðjón Hauksson, faðir Harðar Þórs margsinnis orðið Íslandsmeistari í pílukasti, eða oftast allra. En a.m.k. 17 Íslandsmeistaratitlar hafa skilað sér til Grindavíkur frá árinu 1986.