104. fundur Fræðslunefndar haldinn sem fjarfundur í Teams, 3. desember 2020 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson, formaður, Arna Björg Rúnarsdóttir, aðalmaður,
Siggeir Fannar Ævarsson, aðalmaður, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir, aðalmaður, Sigurpáll Jóhannsson, varamaður, Dagmar Lilja Marteinsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Rakel Eva Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi, Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri, Inga Þórðardóttir, skólastjóri, Guðbjörg Málfríður Sveinsdóttir, grunnskólastjóri, Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri, Smári J. Jónsson áheyrnarfulltrúi, Aníta Sveinsdóttir áheyrnarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. Ytra mat á skólaþjónustu - 2001019
Lögð fram umbótaáætlun í kjölfar úttektar á skólaþjónustu Grindavíkurbæjar.
2. Starfsáætlun skólaþjónustu 2020-2021 - 2012004
Lögð fram starfsáætlun skólaþjónustu fyrir skólaárið 2020-2021.
3. Samráð og samvinna við skipulag skóladagatala - 2012006
Lagt fram minnisblað um samráð skólastjórnenda og foreldra við gerð skóladagatala. Lagt er til kallað verði til samráðsfundar meðal stjórnenda skólanna fyrr í ferlinu.
4. Samræmd könnunarpróf haustið 2020 - 2012005
Skólastjóri grunnskóla leggur fram niðurstöður í samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk haustið 2020.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30.