472. fundur Hafnarstjórnar Grindavíkur haldinn Seljabót 2, þann 8. júní og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Ómar Davíð Ólafsson, formaður,
Páll Jóhann Pálsson, aðalmaður,
Hallfreður G Bjarnason, aðalmaður,
Páll Gíslason, aðalmaður,
Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði: Sigurður A Kristmundsson, Hafnarstjóri.
Dagskrá:
1. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki - 1808151
Farið yfir stöðu mála. Skoða þarf kosti þess að fræsa eða slípa bryggjuna.
2. Skemmdir í þekju á Suðurgarði - 2003016
Hafnarstjóra falið að sækja um framkvæmdastyrki fyrir viðgerðinni.
3. Fyrirspurn um breytingar á löndunaraðstöðu fyrir frystitogar - 2006023
Hafnarstjórn tekur vel í erindið en leggur á það áherslu að skerða ekki plássið á bryggjunni enn frekar. Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
4. Fráveita Grindavíkurbæjar - hönnun og staðarval - 2001029
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir
5. Glærmöttull, ágengar lífverur í Grindavíkurhöfn - 2003022
Hafnarstjórn telur ekki þörf á rannsóknum á þessari lífveru að svo stöddu.
6. Staða verkefna árið 2020 - 2006028
Farið yfir stöðu mála, hafnastjóra falið að leita tilboða í ástandskoðun hafnamannvirkja. Hafnastjóra falið að leita tilboða í myndavélakerfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.