Lausar eru til umsóknar tvćr íbúđir viđ Austurveg 5 (Víđihlíđ)

  • Fréttir
  • 30. október 2020

Forsenda þess að geta sótt um íbúð er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði: 
a. Umsækjandi um íbúð skal hafa náð 72 ára aldri 
b. Umsækjandi skal hafa átt lögheimili samfellt í sveitarfélaginu í 12 mánuði 
c. Umsækjandi sé í þörf fyrir félagslega aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili
Heimilt er að veita undanþágur frá ofangreindum skilyrðum við ákveðnar aðstæður samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar sem nálgast má í heild sinni hér.
Annars vegar er laus til umsóknar íbúð á 1. hæð. Íbúðin er u.þ.b. 40 fm, auk geymslu og er áætlað leiguverð í upphafi leigutíma um kr. 97.000,-.
Hins vegar er laus til umsóknar íbúð á 2. hæð. Íbúðin er u.þ.b. 40 fm, auk geymslu og er áætlað leiguverð í upphafi leigutíma um kr. 99.000,-.
Ekki verður gerð krafa um greiðslu íbúðarréttar en leigutaki þarf við gerð leigusamnings að reiða fram tryggingu sem svarar til þriggja mánaða leigu.
Frestur til að leggja inn umsókn er tvær vikur eða til og með 13. nóvember nk. Félagsmálanefnd Grindavíkur úthlutar íbúðunum á grundvelli mats á þörfum umsækjenda og er m.a. horft til andlegra, líkamlegra, fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna umsækjenda, auk húsnæðisaðstæðna. Íbúðirnar verða lausar til afhendingar eftir miðjan nóvember.
Til að leggja fram umsókn um íbúðina þá smelltu hér.  


Eingöngu er tekið á móti rafrænum umsóknum á netfangið midgardur@grindavik.is.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál