Hraustkransagerđ

  • Námskeiđ
  • 4. september 2020

Gugga í Blómakoti er flestum Grindvíkingum að góðu kunn. Í næstu viku, fimmtudaginn 10. september klukkan 19:00 ætlar Gugga að leiðbeina okkur um gerð haustkransa en hver og einn gerir sinn krans.
Þátttakendur kaupa pakka sem innheldur krans og vír og annað nauðsynlegt. Posi á staðnum.

Allir þátttakendur eru hvattir til að tína greinar, lyng, mosa og ber til þess að nota en einnig verður slíkt á staðnum.

Viðburðurinn er öllum opinn en nauðynlegt er að skrá þátttöku á Facebook síðu Kvikunnar 'GOING' svo hægt sé að tryggja sóttvarnarráðstafanir og efnivið fyrir alla. 

Vegna mikillar eftirspurnar höfum við ákveðið að breyta fyrirkomulagi skráningar og biðjum þátttakendur að senda póst á netfangið kvikan@grindavík.is með upplýsingum. Ekki er hægt að hafa fleiri en 20 manns á námskeiðinu í einu. Ef skráningin fer yfir 20 verður hópnum skipt í tvennt og við látum vita með tölvupósti og á Facebook síðu Kvikunnar

 


Deildu ţessari frétt