Viðbygging við Hópsskóla framundan

  • Skipulagssvið
  • 13. ágúst 2020

Grindavíkurbær hefur að undanförnu unnið að hönnun á viðbyggingu við Hópsskóla, sem er 2. áfangi. Byggingarnefnd hefur unnið að verkefninu með hönnuðum, í samráði við stjórnendur grunnskólans. Um er að ræða 1.100 m² byggingu á einni hæð auk þess verður kjallari undir hluta byggingar. 

Í viðbyggingu verða m.a. fjórar heimastofur ásamt fjórum öðrum stofum fyrir textílmennt, myndmennt, heimilisfræði og smíði.

Viðbyggingin mun tengjast núverandi skóla að austanverðu og byggjast til suðurs, í átt að Hópinu.

Hönnun er á lokastigi og verður verkið boðið út í sumar. Hönnuðir eru Kollgáta og VSÓ ráðgjöf. 

Efst má sjá norðurhlið viðbyggingar

Grunnmynd viðbyggingar

Austurhlið

Vestuhlið viðbygginar

 

Skipulag- og umhverfissvið 420 1100
grindavik@grindavik.is
Sviðsstjóri er Atli Geir Júlíusson
Netfang: atligeir@grindavik.is

 


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokað fyrir kalt vatn á Baðsvöllum í dag

Fréttir / 23. janúar 2026

Dale Carnegie námskeið fyrir fullorðna

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffið verður næst 12. janúar