Grindavíkurbær veitir árlega starfsstyrki til einstaklinga, félagasamtaka og/eða stofnana á frístunda- og menningarsviði í gegnum samstarfssamninga. Stuðningurinn er í formi fjárframlaga og/eða afnota af húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Markmið samninganna er að:
• Draga úr kostnaði við frístunda- og tómstundaiðkun barna og unglinga í Grindavík.
• Styðja við starf með börnum á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðum skilningi.
• Vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópum iðkenda.
• Styðja við afreksstarf hjá íþróttafélögum í Grindavík.
• Styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
• Styðja við viðburðahald í Grindavík.
• Styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar í Grindavík.
Skipulagt frístunda- og menningarstarf þarf að uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum til þess að það teljist styrkhæft:
• Starfsemin/viðburður skal vera opin íbúum í Grindavík.
• Starfsemin sé ekki rekin í ágóðaskyni.
• Starfsemin fellur að menningarstefnu Grindavíkurbæjar.
• Starfsemin fellur að frístundastefnu Grindavíkurbæjar.
• Starfsemin fellur að íþróttastefnu Grindavíkurbæjar.
• Aðilar, frístunda- og menningarstarf eða viðburður skal tengjast Grindavík með einhverjum hætti.
Samningar Grindavíkurbæjar við félagasamtök á frístunda- og menningarviði gilda frá 1. janúar til 31. desember. Samningar eru ekki gerðir til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Allir samningar skulu hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Eftirfarandi samningar eru í gildi á frístunda- og menningarsviði á árinu 2021
• Aðalstjórn UMFG (rennur út 31.12.2024)
• Félag eldri borgara í Grindavík (rennur út 31.12.2021)
• Golfklúbbur Grindavíkur (rennur út 31.12.2021)
• Grindavíkurkirkja (rennur út 31.12.2021)
• GG knattspyrnufélag (rennur út 31.05.2021)
• Íþróttafélagið Nes (rennur út 31.12.2021)
• Knattspyrnudeild UMFG (rennur út 31.12.2020)
• Kvennakór Grindavíkur (rennur út 31.12.2021)
• Minja- og sögufélag Grindavíkur (rennur út 31.12.2021)
• Slysavarnardeildin Þórkatla (rennur út 31.12.2021)
• Unglingadeildin Hafbjörg (rennur út 31.12.2021)
Umsóknum vegna ársins 2021 skal skilað á þar til gerðu eyðublaði til sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs gegnum netfangið eggert@grindavik.is eigi síðar en 31. maí nk. Umsóknir verða lagðar fyrir frístunda- og menningarnend sem gerir tillögu til bæjarráðs eigi síðar en 15. september.
Hérna má finna eyðublöð og verklagsreglur.
Auglýsing um starfsstyrki 2020