Lausar stöður við Grunnskóla Grindavíkur

  • Fréttir
  • 7. apríl 2020

Lausar eru til umsóknar eftirfarandi stöður við Grunnskóla Grindavíkur:

Umsjónarkennarar á öllum stigum 80 - 100% 
Námsráðgjafi 100%, textílkennari 100% og kennari í smíði- og hönnun 100%. 

Umsóknarfrestur er til 22. apríl en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2020.    

Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/grunnskolinn. 

Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Skólinn vinnur í anda Uppeldi til ábyrgðar. 

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin.  Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.  

Umsóknir  skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is  

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200. 


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum