Margir foreldrar velta nú fyrir sér hvernig best sé að halda utan um það við hvern börn þeirra leika við að skólatíma loknum. Hér í Grindavík er t.a.m. búið að skipta skólabörnum í hópa til að koma í veg fyrir krosssmit. Verði einhver veikur af Covid-19 þarf ekki að fella niður allt skólastarf heldur aðeins hjá þeim hópi sem upp kemur smit.
Heimili og skóli hefur fengið þessa fyrirspurn og leitaði eftir upplýsingum hjá sóttvarnarlækni. Hér eru leiðbeiningar:
Foreldrar eru hvattir til þess að takmarka samgang allra í fjölskyldunni við aðra utan fjölskyldunnar sem mest og hafa í huga að halda ákveðinni fjarlægð á milli einstaklinga ásamt hreinlætisaðgerðum. Þetta gildir hvort sem um er að ræða vini eða ættingja.
Foreldrar bera að sjálfsögðu ábyrgð á því hvernig þeir útfæra þessar grunnreglur um samskipti en í raun þýðir þetta að ekki er hvatt til þess að börn séu að hittast til að leika eða læra saman að óþörfu.