1542. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 11. mars 2020 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður,
Páll Valur Björnsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi og Helga Dís Jakobsdóttir, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem síðasta mál á dagskrá.
2003039 Leikskólinn Krókur - bílastæði.
Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. Jafnlaunavottun - 1902033
Skýrsla PwC um jafnlaunakönnun og úttektarskýrsla iCert vegna vottunar á jafnlaunakerfi lagðar fram. Niðurstaðan er að Grindavíkurbær kemur vel út í jafnlaunakönnuninni og vottunarfyrirtækið mun mæla með að Grindavíkurbær fái jafnlaunamerki frá Jafnréttisstofu.
2. Fjárframlag úr framkvæmdasjóði aldraðra - 2002007
Erindi frá öldrunarráði lagt fram.
Bæjarráð býður Pétri Magnússyni forstjóra Hrafnistu á næsta fund bæjarstjórnar.
3. Reglur um lyfjagjafir barna í skólum Grindavíkurbæjar - 1812006
Bæjarráð felur sviðsstjóra skólaþjónustu að leita lausna með hliðsjón af tilmælum landlæknis.
4. Skipan starfshóps vegna matvöruverslunar - 2003012
Sigurður Óli Þórleifsson forseti bæjarstjórnar leggur málið fyrir fundinn.
Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp um stöðu matvöruverslunar í Grindavík.
Í starfshópinn eru eftirfarandi skipaðir:
Sigurður Óli Þórleifsson, forseti bæjarstjórnar.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs.
5. Kórónuveiran COVID-19 - 2003020
Drög að viðbragðsáætlun Grindavíkurbæjar og drög að erindisbréfi neyðarstjórnar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðbragðsáætlunina og erindisbréf neyðarstjórnar.
6. Leikskólinn Krókur - bílastæði - 2003039
Málið er tekið á dagskrá að beiðni Páls Vals Björnssonar.
Málið lagt fyrir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10.