Menningarhús Grindvíkinga, Kvikan verður sem fyrr opið um helgina frá 10:00 - 17:00 en boðið verður upp á ýmislegt skemmtilegt fyrir íbúa bæjarins.
Í dag verður boðið upp á kaffi og bakkelsi fyrir gesti auk þess sem frítt er á sýningarnar í húsinu. Til taks verða ýmis spil sem gestir og gangandi geta gripið í. Það er fallegur dagur og útsýnið úr Kvikunni, út yfir höfnina er dásamlegt í vetrarveðri sem þessu.
Dagskrá laugardag:
Kl. 10:00 - 12:00: Opið verður á sýningarnar og frítt inn. Elínborg Gísladóttir sóknarprestur verður á staðnum. Hægt er að leita til hennar ef fólk hefur einhverjar spurningar.
Kl. 13:00: Opinn jógatími á efri hæðinni undir leiðsögn Petrúnellu Skúladóttur. Þeir sem eiga jógadýnur geta komið með sínar eigin annars verða dýnur og teppi á staðnum. Í kjölfar tímans verður boðið upp á Kviku-skot (engifer-skot) fyrir þá sem vilja. Þá verður einnig hressing í boði fyrir gesti og gangandi.
Kl. 14:00 - 17:00: Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur verður á staðnum í kaffispjalli.
Kl.14:00: Krakkabíó þar sem börn og aðrir geta komið og horft saman á skemmtilega mynd. Spil verða áfram á svæðinu fyrir þá sem hafa áhuga á að spila.
Við hvetjum pólskumælandi íbúa Grindavíkur að kíkja við í spjall og hressingu en túlkar verða á staðnum ef þeir hafa einhverjar spurningar. Hvort sem það er landrisið við Þorbjörn eða annað sem viðkemur bæjarfélaginu. Túlkarnir verða til taks frá klukkan 12:00 - 14:00.
Sunnudagur:
Opið frá 10:00 - 17:00 og frítt á sýningarnar. Veitingar verða í boði fyrir gesti og gangandi auk þess sem spil verða á staðnum fyrir þá sem vilja stytta sér stundir.