Ţjóđarleiđtogar heimsóttu Grindavík

  • Fréttir
  • 22. ágúst 2019

Um þessar mundir hafa þjóðarleiðtogar á Norðurlöndunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum verið að funda á Íslandi. Í ár gegnir Ísland formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Yfirskrift formennskuársins er „Gagnvegir góðir“, sem vísar til vináttu Norðurlandanna sem birtist í öflugu samstarfi en gagnvegir liggja líka út í heim þar sem Norðurlöndin kynna sig sameiginlega og leggja sitt af mörkum til alþjóðasamstarfs. Áherslumál Íslands á formennskuárinu eru þrjú: Ungt fólk, sjálfbær ferðamennska og málefni hafsins.

Það voru leiðtogar Grænlands, Álandseyja og Færeyja sem komu ásamt fylgdarliði í gær í heimsókn til Grindavíkur. Byrjað var á að heimsækja HS Orku í Svartsengi þar sem kynnt var starfsemi og sérstaða fyrirtækisins en Auðlindagarður HS Orku er sá eini sinnar tegunar í heiminum. Eftir það lá leiðin í Codland í Grindavík en þeir hafa nýlega opnað vinnslu sína í Grindavík en fyrirtækið vinnur að því að fullnýta afurðir þorsksins og að ekkert fari til spillis. Það var Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Codland sem tók á móti hópnum og kynnti starfsemina. Því næst lá leiðin í Vísi hf þar sem Erla Ósk Pétursdóttir, mannauðsstjóri kynnti sjálfbærni í sjávarútvegi og það starf sem unnið er hjá Vísi. Ferðin var skipulögð af utanríkisráðuneytinu og Alþingi.

Snæddur var hádegisverður á Bryggjunni í nýja salnum á 3ju hæð sem ber nafnið Netagerðin. Boðið var upp á humarsúpu í forrétt, fisk í aðalrétt og pönnukönur með sultu og rjóma í eftirrétt. Milli rétta kynnti Kristín María Birgisdóttir, upplýsinga- og markaðsfulltrúi sjálfbæra ferðaþjónustu á svæðinu ásamt þeim aðgerðum sem ríkisvaldið hefur farið í til að tryggja sjálfbærni til framtíðar. Þá fékk hópurinn kynningu á starfsemi og hlutverki Reykjanes Jarðvangs. 

Fannar Jónasson bæjarstjóri lýsti yfir ánægju með heimsóknina og sagði að Grindvíkingar væru afskaplega stolir af þeirri framleiðslu sem færi fram í sveitarfélaginu og þeim fyrirtækjum sem þar störfuðu. 

Meðfylgjandi mynd var tekin af hópnum en þar eru m.a. þau Kim Keilsen er formaður landsstjórnarinnar í Grænlandi og Katrin Sjögren landsstjóri Álandseyja, Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, Stefán Skjaldarson, sendiherra og fararstjóri hópsins, Jóna Sólveig Elínardóttir fyrrverandi þingmaður og núverandi starfsmaður utanríkisráðuneytisins, Halla Gunnarsdóttir sérfræðingur í jafnréttismálum, Björg Torfadóttir stjórnarráðsfulltrúi í utanríkisráðuneytinu og Heiðrún Pálsdóttir, ritari forseta Alþingis. Fyrir hönd Grindavíkurbæjar eru Fannar Jónasson,  bæjarstjóri og Kristín María Birgisdóttir, upplýsinga- og markaðsfullrúi. 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir