Bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að grenndarkynna skipulagsbreytingar við Verbraut1 og 5. Um er að ræða óverulegar breytingar á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingar eru gerðar á deiliskipulagi miðbær – hafnarsvæði og deiliskipulagi gamla bæjarins í Grindavík. Lóð Verbrautar 1 er færð inn á skipulag miðbær- hafnarsvæði og skilgreindir byggingarskilmálar fyrir hana og felldur út byggingarreitur á Verbraut 5.
Samhliða er gerð óveruleg breyting á landnotkun í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Breytingartillögur eru aðgengilegar hér í gögnum fyrir neðan. Þeim sem telja sig hafa hagsmuna að gæta geta sent inn athugasemdir til 15 mars 2019 til Sigurðar Ólafssonar sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, sigurdur(hjá)grindavik.is eða á skrifstofu bæjarins merkt „Verbraut 1 og 5“.
Sigurður Ólafsson
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Hafnarsvæðið - deiliskipulagsbreyting
Grindavík, gamli bærinn - deiliskipulagsbreyting
Grindavík, hafnarsvæðið - deiliskipulagsbreyting