29. fundur afgreiðslunefndar byggingarmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, föstudaginn 17. ágúst 2018 og hófst hann kl. 13:00.
Fundinn sátu: Sigmar Björgvin Árnason, byggingarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Sigmar Árnason, byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Víkurhóp 6-8: umsókn um lóð - 1808110
Stefanía Karlsdóttir sækir um lóðir til byggingar parhúss.
Samþykkt.
2. Efrahóp 22: umsókn um byggingarleyfi - 1808157
Sigurður Óli Þórleifsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi samkvæmt teikningum frá Kristinni Ragnarssyni arkitekt dags.08.03.2018
Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 2 og 4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt og greinagerð hönnunarstjóra hafi verið skilað inn.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30.