Starfsmenn Ţrumunnar uppfullir af fróđleik eftir starfsdaga Samfés

  • Fréttir frá Ţrumunni
  • 17. september 2018

Í ár fóru þrír starfsmenn frá félagsmiðstöðinni Þrumunni, þær Sigríður Etna, Melkorka Ýr og Katrín Lóa á starfsdaga Samfés. Samfés eru frjáls félagasamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi. Í september ár hvert standa samtökin fyrir starfsdögum. Þangað eru allir starfsmenn félagsmiðstöðva á Íslandi velkomnir til að taka þátt í fræðslu.

Þáttakendur starfsdagana fengu m.a. fyrirlestra um:

Áhættu- og verndandi þætti í meðferðarúrræðum unglinga 
Misnotkun lyfseðilskyldra lyfja, lyfjamenningu, viðhorf og ástæður misnotkunar slíkra lyfja. 
Rafíþróttir
Sjálfskaðahegðun unglinga
#sjúkást - sem er verkefni á vegum Stígamóta um forvarnir gegn kynferðisofbeldi og heilbrigð sambönd ungmenna.

Auk þess voru í boði margar og fjölbreyttar málstofur, m.a. um ofbeldisforvarnarfræðslu, um starf á miðstigi í félagsmiðstöðvum, ungmenni í vanda, úrræði fyrir flóttamenn og fólk af erlendum uppruna, hinsegin sýnileika í félagsmiðstöðvarstarfi, ungmennaráð og margt fleira.

Starfsmenn Þrumunnar voru allir sammála því að þessir starfsdagar væru mjög fræðandi og lærðu þeir margt á þessum tveim dögum sem hægt er að nýta í félagsmiðstöðinni Þrumunni í Grindavík.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun