Auglýst eftir framboðum í Ungmennaráð Grindavíkur

  • Fréttir
  • 3. september 2018

Hefur þú áhuga á því að taka þátt í spennandi starfi Ungmennaráðs Grindavíkur? Í samræmi við samþykktir Ungmennaráðs er auglýst eftir framboðum í Ungmennaráðið. Eftirfarandi fjögur sæti eru laus: 

 

- 13-16 ára. Einn aðalmaður til tveggja ára. Einn varamaður til tveggja ára. Verði frambjóðendur fleiri en sæti í kjöri, skal fara fram bein kosning meðal nemenda í Grunnskóla Grindavíkur.
- 16-18 ára. Einn aðalmaður til tveggja ára. Einn varamaður til tveggja ára. Verði frambjóðendur fleiri en sæti í kjöri, skal fara fram bein kosning á auglýstum framboðsfundi. 
Atkvæðisbærir eru ungmenni á aldrinum 16-18 ára með lögheimili í Grindavík.

Helsta markmið og hlutverk ungmennaráðs er:
1. að koma skoðunum og tillögum ungs fólks til viðeigandi aðila í stjórnkerfi sveitarfélagsins,
2. að gæta hagsmuna ungs fólks t.d. með umfjöllun og umsögnum um einstök mál sem snerta aldurshópinn sérstaklega,
3. að undirbúa árlegt þing ungs fólks í Grindavík í samstarfi við viðeigandi stofnanir og forstöðumenn,
4. að fulltrúar ráðsins þjálfist í lýðræðislegum vinnubrögðum og læri á stjórnkerfi sveitarfélagsins,
5. að vera ráðgefandi um framtíðarsýn í rekstri félagsmiðstöðva sveitarfélagsins,
6. að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun um málefni ungs fólks

Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið setna@grindavik.is. Senda skal nafn, heimilisfang, netfang og kennitölu. Auk þess þarf að fylgja með af hverju viðkomandi hafi áhuga á að bjóða sig fram í ungmennaráð.  Framboðsfrestur er til og með 10. september 2018

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Etna Marinósdóttir, frístundaleiðbeinandi. 


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum