Félagsmiðstöðin Þruman auglýsir eftir starfsfólki í tímavinnu í vetur, frá 3. september 2018 til 30. apríl 2018.
Um er að ræða vaktir seinni hluta dags og/eða á kvöldin einu sinni til tvisvar í viku og á einstaka viðburði Þrumunnar og Samsuð/Samfés yfir veturinn.
Umsækjendur þurfa að:
- vera orðnir tvítugir að aldri
- vera góðar fyrirmyndir
- hafa öflugt hugmyndflug varðandi tómstundastarf ungmenna
- vera brosmildir og jákvæðir með eindæmum
- hafa almenna skynsemi í lagi
- hafa ökuréttindi
- hafa hreint sakavottorð
Félagsmiðstöðin Þruman er vímulaus vinnustaður.
Umsókn ásamt ferilskrá skal berast eigi síðar en 24. ágúst 2018 á netfangið setna@grindavik.is. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 3. september 2018.
Nánari upplýsingar um störfin veitir frístundaleiðbeinendinn Sigríður Etna (setna@grindavik.is/866-2961).