Atvinna - Húsvörður við Grunnskóla Grindavíkur

  • Fréttir
  • 18. júní 2018

Húsvörður óskast til starfa við Iðuna, Ásabraut 2 og Suðurhóp 2. Starfið felst í umsjón með húsnæði Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut og Suðurhóp auk Tónlistarskóla og Bókasafns við Ásabraut. Viðkomandi hefur einnig umsjón með búnaði, tækjum, skólalóð og lausum munum.

Æskilegt er að viðkomandi sé iðnmenntaður og laghentur. Einnig þarf viðkomandi að hafa ríka þjónustulund og hafa ánægju af að umgangast börn og ungmenni.

Umsóknarfrestur er til 6. júlí en ráðið er í stöðunar frá 15. ágúst 2018. 

Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja eða Verkalýðsfélagi Grindavíkur. 

Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is 

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200/898-6842.


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum