Stórleikur í Mustad-höllinni í kvöld kl. 20:00

  • Körfubolti
  • 27. október 2017

Það verður sannleikur stórleikur í Mustad-Höllinni í kvöld kl 20:00 þegar að Tindastólsmenn mæta með sína herdeild. Liðin með jafnmarga sigra/töp og nú skal látið sverfa til stáls. Börgerarnir verða klárir upp úr 18:30 og um að gera að mæta tímanlega.

Allur aðgangseyrir á leiknum í kvöld sem og á báðum leikjum kvennaliðsins um helgina í Mustad-Höllinni mun renna til fjölskyldu Magnúsar Andra Hjaltasonur sem lést í vikunni langt fyrir aldur fram. Magnús var um árabil formaður deildinnar og hlaut gullmerki UMFG árið 2015.

Stöndum með fjölskyldu Magnúsar og höldum utan um þau öll á þeirra erfiðu tímum. Ítrekum að leikurinn er kl 20:00 og ÁFRAM Grindavík!!

Magnús Andri í góðra vina hópi með þeim Eyjólfi Guðlaugs og Gumma Braga á herrakvöldi körfunnar haustið 2014.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 16. apríl 2025

Ţurfum ađ fá heimild til ađ gista heima

Fréttir / 16. apríl 2025

„Viđ förum aftur heim“

Fréttir / 11. apríl 2025

Ný stuđningsúrrćđi fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 4. apríl 2025

Gefđu von

Fréttir / 1. apríl 2025

Eldgos hafiđ rétt norđur af Grindavík