Miðvikudaginn 14. nóvember 2018, er félagsmiðstöðva- og ungmennahúsadagurinn haldinn um allt Ísland. Þá er þér og öllum bæjarbúum Grindavíkur boðið að koma í heimsókn í félagsmiðstöðina Þrumuna frá kl. 20.00-22.00. Hægt er að skoða gömul myndaalbúm frá starfi Þrumunnar og farið verður í margvíslegar keppnir þar sem nemenda- og Þrumuráð hafa skorað á hina ýmsu bæjarbúa í. Kaka frá Hérastubb í boði fyrir gesti og gangandi og sjoppunefnd verður með opna sjoppu.
Unglingar Þrumunnar skora á ÞIG til að mæta. Komdu og kíktu á aðstöðuna og þú getur jafnvel tekið 1-2 leiki í borðtennis, FIFA, þythokkí, fúsball eða jafnvel Kassa.
Við viljum sjá sem flesta Grindvíkinga mæta. Gamla unglinga Þrumunnar, frænkur, frændur, afa, ömmur, mömmur, pabba og systkini.
Nánari upplýsingar hjá: Sigríði Etnu í netfang: setna@grindavik.is eða síma 866-2961.
Hlökkum til að sjá þig!